Góð ferð Lóuþræla á Tröllaskagann

Á heimasíðu karlakórsins Lóuþræla er ferðalýsing frá söngferðalagi er hann fór um síðustu helgi á Siglufjörð og Dalvík. Segir á síðunni að ferðin hafi tekist ágætlega þó fleiri gestir hefðu mátt láta sjá sig. En fyrsti áfangi var austur á Sauðárkrók og áð á Ábæ.

„Einhverjum pylsum var sporðrennt á þeim bænum, einnig fengu ropvatnssopar að renna niður kverkar ferðafólksins en þegar formanni og söngstjóra kórsins þóttu nóg komið af áti var haldið áfram til Siglufjarðar.

Komið var þangað um klukkan 13:40, ekið beint upp í kirkju þar sem æfingar hófust, fataskipti sett í gang eftir æfinguna og svo sungið fyrir tónleikagesti klukkan 15:00

Ágætt er að syngja í kirkju þessari sem er ótrúlega stór miðað við það að vera "úti á landi" kirkja eins og sumir orðuðu það.

Því næst var ekið af stað til Dalvíkur í gegnum þrenn göng. Þ.e.a.s. Héðinsfjarðargöng og Ólafsfjarðargöng. Já, rétt er lesið. Þrenn göng því Héðinsfjarðargöngin eru jú tvenn.

Þegar í Dalvík var komið var fyrst stoppað í menningarhúsinu Bergi en þar beið okkar líklega sú allrabesta fiskisúpa sem undirritaður hefur nokkurtíman smakkað. Og ekki var brauðið síðra sem fylgdi með súpunni, hvað þá smjerið :-)

Eftir dálítið súpuát (tvær sneisafullar skálar af fiskisúpu) var farið í safnaðarheimili kirkjunnar, þeir skiptu um föt sem þurftu og létt æfing tekin fyrir tónleikana. Tónleikarnir sjálfir heppnuðust ágætlega og tónleikagestir voru ánægðir með frammistöðu kórsins.

Eftir þessa tónleika var ekið sem leið lá til Hvammstanga, með stoppum hér og þar til að losa út kórfélaga sem þurftu að komast til sín heima utan Hvammstanga. Ferðalag klárað um klukkan 01:15.“

Nokkrar myndir eru nú komnar inn á heimasíðu kórsins frá ferðinni og hægt að nálgast þær HÉR.

/louthraelar.123.is

Fleiri fréttir