Góð gjöf að Löngumýri

Nú á dögunum barst Fræðslusetri þjóðkirkjunnar að  Löngumýri góð gjöf þegar sóknarnefnd Víðimýrarsóknar færði staðnum glænýtt Philips hátæknisjónvarp með 55 tommu skjá. Þar sem stór hluti gesta er aldraðir eykur þetta ánægju þeirra er farnir eru að missa sjón.

Einnig eru fjölmargir notkunarmöguleikar í boði sem bíða þessa að verða virkjaðir með nettengingu og nýtast öðrum hópum í leik og starfi. Sóknarnefndin hefur oft áður stutt dyggilega við starfið á Löngumýri sem og öðrum stöðum með ómetanlegum hætti. Myndin er tekin þegar sr. Gísli Gunnarsson í Glaumbæ formaður Löngumýrarnefndar veitti sjónvarpinu viðtöku frá sóknarnefndinni.

 

Fleiri fréttir