Góð helgi hjá 7. flokki stúlkna
Stelpurnar í 7. flokki körfuboltans hjá Tindastóli halda áfram að standa sig vel en þær eru í A-riðli Íslandsmótsins og kepptu í DHL-höllinni í 3. umferð um síðustu helgi. Niðurstaðan varð tveir sigrar og tvö töp.
Úrslit leikjanna urðu þessi:
- Tindastóll - Hrunamenn 34-32. Linda skoraði 18 stig, Anna, Júlía og Bríet 4 hver og Sunna og Jóna 2 stig hvor.
- Tindastóll - KR 27-30. Linda 16 stig, Jóna og Valdís 3 stig hvor, Dagmar og Hafdís 2 hvor og Sunna 1.
- Tindastóll - Fjölnir 40-33. Linda 18. Jóna 11, Bríet 5, Valdís 4 og Dagmar 2.
- Tindastóll - Keflavík 21-50. Linda 7 stig, Jóna og Matthildur 5 hvor og þær Sunna og Bríet 2 hvor.
Áfram halda stúlkurnar að tapa naumlega fyrir KR, en leikir þessara liða hafa verið mjög spennandi í vetur.
Fjórða og síðasta umferðin hjá stelpunum verður úrslitakeppni um Íslandsmeistaratitilinn. Keflavíkurstúlkur eru með yfirburðalið í þessum flokki, en þar fyrir neðan koma í raun öll hin liðin og ætla stelpurnar að verja stöðu sína í Íslandsmótinu þetta árið, en í fyrra unnu þær til silfurverðlauna.
Þjálfari stúlknanna er Hrafnhildur Sonja Kristjánsdóttir.
/Tindastóll.is