Góð mæting á Art 65,45 °N

Yfir 200 manns mættu á Art 65,45 °N í gærkvöldi þar sem aðstandendur klasaverkefnisins “Litli skógur” (Little Wood) stóðu fyrir opinni listasmiðju í gamla Tengilshúsinu við Aðalgötu á Sauðárkróki.

Við setninguna sagði Árni Gunnarsson kvikmyndagerðarmaður og einn aðstandenda Litla-skógar að tilurð þessa verkefnis hafi byrjað í léttu spjalli hans og Guðbrands Ægis Ásbjörnssonar en með aðkomu Viggós Jónssonar hafi komist hreyfing á hlutina af alvöru. Fleiri aðilar hafa komið að þessu verkefni en aðalburðarásarnir eru þeir Árni, Ægir og Fúsi Ben, sem hefur aðsetur í húsinu með hljóðstúdíó sitt. Í húsinu fer fram vinna við kvikmyndir, klippingar og hljóðsetning ásamt fréttatengdu efni o.fl..

Auk kynningar á starfssemi klasans var boðið upp á lifandi tónlist, sýnishorn úr stuttmyndum Kvikmyndasmiðjunnar, myndlist, hárgreiðslu frá Kúnst og léttar veitingar með sushiréttum frá Jóni Dan.

.

Fleiri fréttir