Góður gestur á Hólum

Á heimasíðu háskólans á Hólum segir frá því að í liðinni viku var Dr. Kate Dashper frá UK Centre for Events Management við Leeds Metropolitan University í heimsókn hjá ferðamáladeild. Kate kennir viðburðastjórnun en doktorsverkefnið hennar fjallaði um keppendur í hestaíþróttum.

Á heimasíðu Hóla segir; „Kate kom hingað til að ræða um rannsóknasamstarf við þær Ingibjörgu Sigurðardóttur og Guðrúnu Helgadóttur sem eru að rannsaka hestatengda ferðaþjónustu.

Tími Kate hér var vel nýttur. Tækifærið var meðal annars notað til skrafs og ráðagerða um sameiginlegt námskeið ferðamála- og hestafræðideilda um íþróttaviðburði, sem verður kennt á næsta skólaári. Við Leeds Metropolitan er einmitt fjölmenn námsbraut í viðburðastjórnun þar sem áhersla á íþróttaviðburði er vinsæl og því gagnlegt að geta leitað í þeirra smiðju um góð ráð.

Kate var svo með gestafyrirlestur í námskeiðinu þjónustumarkaðsfræði, sem nú er kennt á 2. ári í BA-námi í ferðamálafræði, auk þess að skoða hross og fylgjast af áhuga með fjórgangskeppni nemanda hestafræðideildar.“

Fleiri fréttir