Góður sigur á Njarðvík

Tindastóll/Hvöt lék við Njarðvík í Lengjubikarnum sl. laugardag en leikurinn fór fram í Reykjaneshöllinni.Er skemmst frá því að segja að okkar menn stóðu uppi sem sigurvegarar 2 - 1.

Þetta var annar leikur liðsins í þessari keppni. Liðið sigraði Knattspyrnufélag Fjallabyggðar um síðustu helgin eins og fram hefur komið.

Leikurinn við Njarðvíkinga var hörkuleikur sem lauk með sigri okkar manna eftir markalausan fyrri hálfleik. Njarðvíkingar komust yfir í seinni hálfleik en Kolbeinn Kárason jafnaði fyrir okkur. Þegar lítið var eftir af leiknum skoraði Aðalsteinn nokkur Arnarson fallegt mark og tryggði liðinu þrjú dýrmæt stig. 1 - 2 sigur eru býsna góð úrslit og ástæða til að hrósa okkar mönnum fyrir góða frammistöðu

Fleiri fréttir