Góður sigur hjá okkar strákum
2.flokkur Tindastóls/Hvatar er kominn í 16-liða úrslit Valitors-bikarsins í knattspyrnu eftir frækinn 3-2 sigur á Fjölni/Birninum á Sauðárkróksvelli í gær.
Hilmar Þór Kárason, Kristinn Justininao og Árni Arnarson sáu um að skora mörkin en leikurinn var góður og frábær sigur hjá okkar strákum. Strákarnir mæta síðan Gróttu á heimavelli þann 25. Júní kl:14:00 í 16-liða úrslitunum.
Atvik úr leiknum og 2 af 3 mörkum Tindastóls/Hvatar er hægt að sjá inná TindastólTV