Gollar Hilmis komin út
Út er komin bókin Gollar eftir Hilmi Jóhannesson á Sauðárkróki sem fjallar um stórþorska, bændur, trillukalla og ellilífeyrisþega. Höfundur segist hafa búið á mestu menningarsvæðum landsins: Þingeyjasýslu, Borgarfirði og lengst í Skagafirði og búa Íslendingar á öllum þessum stöðum og eru þetta frásagnir af þeim.
-Þetta eru Íslendingasögur, sögur af Íslendingum og heitir Gollar og borið fram með linum „ellum“, segir Hilmir en innan á bókarkápu útskýrir hann Íslendingasögur á eftirfarandi hátt. „Sannleikurinn í þeim er aukaafurð. Hina vantrúuðu er ógjörlegt að sannfæra. Ef lesandinn trúir er ekki hægt að ljúga. Saga fyllir tíma þeirra sem lesa eða hlusta. Sögurnar lýsa sjaldan umhverfi eða aðstæðum, nákvæmar veður eða náttúrulýsingar, þjóna aðeins framrás atburða“.
Hilmir segir að efnisyfirlitið komi fram í vísukorni í sögulok en þar segir:
Staldraðu við og láttu hugann leita,
labbaðu til baka, á gúmmískónum,
um sumardag, á sandinum, í mónum,
sem að tíminn náði ekki að breyta.
Eyðist það sem af er tekið burt,
annað breytist, þó það sé um kjurt.
Það var Nýprent sem sá um uppsetningu og prentun en höfundur gefur út og selur bókina sjálfur.