Gönguskarðsárvirkjun tekin í notkun á ný

Stíflan og inntakshúsið. Mynd: Valgeir Kárason.
Stíflan og inntakshúsið. Mynd: Valgeir Kárason.

Endurbyggð virkjun í Gönguskarðsá við Sauðárkrók var formlega tekin í notkun í gær, að afloknum framkvæmdum sem staðið hafa yfir síðast liðna tíu mánuði. Að sögn Péturs Bjarnasonar, forsvarsmann Íslandsvirkjunar, hafa framkvæmdir gengið vel.

Gönguskarðsárvirkjun var upphaflega byggð á árunum 19449 og tekin í notkun síðla árs 1949. Rarik hætti svo rekstri hennar árið 2007, eftir að rennslislögn frá henni sprakk, skammt ofan við stöðvarhúsið á Sauðárkróki. Virkjunin framleiðir um 1650kW og framleiðir rafmagn sem fer inn á landsnetið til dreifingar. Virkjunin er hins vegar á svokallaðri eyjakeyrslu sem þýðir aukið raforkuöryggi íbúa á Sauðárkróki, nú eftir að hún hefur verið tekin í notkun.

„Allur aðbúnaður og aðföng á svæðinu hefur verið til sóma. Þá hefur samstarfið við sveitarfélagið og verktaka verið einstaklega gott,“ sagði Pétur. „Þar fyrir utan lofaði Viggó Jónsson okkur góðu veðri á meðan á framkvæmdunum stæði og það hefur gengið eftir. Loks sagði að ánægjulegt hefði verið að sjá þrjú andarpör komin á lónið í morgun þegar hann lagði leið sína að virkjuninni. 

Fleiri fréttir