Gott skrið á undirbúningi fyrir Stöðina

Gott skrið er á undirbúningi fyrir skála með veitinga- og bensínsölu á landi Melstaðar í Miðfirði. Skálinn verður í flokki hjá þeim sem kallaður er Stöðin en samkvæmt Leó Erni Þorleifssyni, oddvita sveitarstjórnar Húnaþings vestra, er verið að byggja samskonar skála í Borgarnesi. Húnaþing vestra verður síðan næst á dagskrá.

Á síðasta fundi sveitarstjórnar Húnaþings vestra þann 2. maí sl. var samþykkt tillaga um breytta notkun landspildunnar.

„Sveitarstjórn Húnaþings vestra samþykkir að sú 12.000 m2 lóð sem fyrirhugað er að stofna út úr landi Melstaðar, landnr. 144137, undir veitingasölu, verslun, þjónustu og eldsneytisafgreiðslu, samkvæmt uppdráttum með fyrirhuguðum skipulagsbreytingum, verði leyst úr landbúnaðarnotum.“

Skeljungur hefur þegar gert leigusamning við Kirkjuna um leigu á spildunni og umboð frá Kirkjumálasjóði var lagt fram við umsókn Skeljungs hf. um stofnun þjónustulóðarinnar í síðasta fundi skipulags- og umhverfisráðs Húnaþings vestra þann 3. maí sl. Umsóknin samþykkt og hlaut hún nýtt landnúmer.

Um Stöðina segir á heimasíðu hennar:

„Stöðin er svona gæða, kaffihúsa, lúgu, sjoppu, grill og rúnstykkja diner.... og með hágæða kaffi við valdar bensínstöðvar Orkunnar og Shell. Stöðin er í eigu Skeljungs. Kort og lyklar Orkunnar og Skeljungs virka því til greiðslu á Stöðinni.“

Fleiri fréttir