Gott stig gegn Fram

Mfl.kvenna spilaði fimmtudaginn 16.júní við Fram í Safamýrinni.  Það voru drauma aðstæður til knattspyrnuiðkunnar, það var blanka logn og smá úði. Lið Tindastóls lagði upp með það að fá ekki á sig mark í leiknum enda hefur liðinu gengið illa að safna stigum á útivelli undanfarin ár.  Því var markmiðið að loka vel á svæði fyrir aftan vörnina og beita svo skyndisóknum.

Það plan gekk fullkomlega upp því að Framliðið fékk ekki færi í leiknum og spilaði Tindastólsliðið frábærlega agaðan og skipulagðan varnarleik. Með smá heppni hefði Tindastólsliðið geta skorað úr skyndisóknunum en það gekk ekki eftir, leikurinn endaði því með markalausu jafntefli. En eitt er alveg á hreinu að Tindastólsliðið sýna mikla baráttu og átti þetta stig fyllilega skilið.  Og eins var þetta var virkilega gott stig sem kemur til með að telja.  Virkilega flott frammistaðan hjá öllu liðinu.

Byrjunarlið
Tóta (m), Fríða, Sunna (F), Svava Rún, Guðný Þóra, María, Brynhildur, Rakel Svala, Þóra Rut, Bryndís Rún og Laufey Rún.

Bekkur
Snæja, Harpa Sif, Sigríður Vava, Hildur Hrönn og Salóme.

Skiptingar
Sigríður Vava kom inn fyrir Brynhildi á 46.mín
Snæja kom inn fyrir Laufeyju á 64.mín
Harpa Sif kom inn fyrir Þóru á 77.mín
Hildur Hrönn kom inn fyrir Rakel Svölu á 85.mín
Salóme kom inn fyrir Maríu á 88.mín

Fleiri fréttir