Grænfáni blaktir hjá Grunnskóla Húnaþings vestra
Nú blaktir Grænfáninn við hún hjá Grunnskóla Húnaþings vestra á Laugarbakka og Hvammstanga, en hann er umhverfismerki sem nýtur virðingar víða í Evrópu sem tákn um góða fræðslu og umhverfisstefnu í skólum.
Umhverfisnefnd skólans hefur borið hita og þunga af framkvæmd verkefnisins og verður áfram í lykilhlutverki að leiða skólann og samfélagið allt í átt til aukinnar umhverfisvitundar.
Þann 6. janúar síðastliðinn var stór dagur í sögu Grunnskólans er fánar voru afhentir bæði á Laugarbakka og Hvammstanga. Orri Páll Jóhannsson fulltrúi Landverndar flutti tölu á báðum stöðum og einnig Rakel Ósk Ólafsdóttir og Jón Freyr Gíslason nemendur í 10. bekk sem bæði eru fulltrúar í umhverfisnefnd skólans.
Á heimasíðu Grunnskóla Húnaþings vestra segir að næstu skref verði að kalla saman umhverfisnefndina aftur og setja sér ný markmið fyrir nýbyrjað ár, því ekki skal láta deigan síga þar sem fáninn blaktir við hún og hvetur til frekari góðra verka.
Nú hafa allar skólastofnanir í Húnaþingi vestra fengið viðurkenningu Landverndar og Flagga nú Grænfánanum en leikskólinn Ásgarður fékk afhendan grænfánann á sumarhátíð leikskólans þann 23. júní 2011 og Grunnskólinn á Borðeyri fékk afhendan grænfánann á vormánuðum 2011.
Hér er hægt að nálgast pistil sem Hafdís Brynja Þorsteinsdóttir setti saman fyrir hönd umhverfisnefndar.