Grænfáni í Grunnskóla Húnaþings vestra

Markmið verkefnisins er að bæta umhverfi skólans, minnka úrgang og notkun á vatni og orku, efla samfélagskennd innan skólans sem og að auka umhverfisvitund með menntun og verkefnum innan kennslustofu og utan. Þá er einnig markmið verkefnisins að styrkja lýðræðisleg vinnubrögð við stjórnun skólans þegar teknar eru ákvarðanir sem varða nemendur og veita nemendum menntun og færni til að takast á við umhverfismál, efla alþjóðlega samkennd og tungumálakunnáttu og tengja skólann við samfélag sitt, fyrirtæki og almenning.

Hefðbundnu skólastarfi lýkur með vordögum sem einkennast af Grænfánaverkefninu. -Á vordögunum ætlum við meðal annars að reisa hænsnahöll fyrir hænurnar sem við unguðum út í náttúrufræði, fegra skólalóðina, hlúa að trjánum, gróðursetja blóm og búa til matjurtagarð og fleira og fleira.  En stærsta nýjungin er orkusparandi dagurinn 17. maí þar sem við hvetjum alla íbúa sveitafélagsins til að skilja bílana eftir heima. Vordögunum lýkur svo með vorhátíð sem er opin fyrir almenning, segja þær Iðunn Berta Bjarnadóttir 10. bekk, Rakel Ósk Ólafsdóttir 9. bekk og Arna Rós Bragadóttir 8.bekk skólans en þær eru nemendur í umhverfisnefnd skólans.

Vorhátíðin verður haldinn 20. maí og hefst klukkan 13:00, en þar verður meðal annars fluttur frumsaminn söngleikur af nemendum í hljómlistarvali, draugahús, hoppukastali, kórsöngur, trúðar, andlitsmálning, kaffihús verður á staðnum til styrktar ferðasjóð verðandi 10. bekkjar og margt fleira spennandi verður að sjá.

Fleiri fréttir