Grafalvarleg staða sauðfjárbænda
„Stéttin er í hálfgerðri tilvistarkreppu og erfiðast er hjá yngri bændunum sem skulda einhverja fjármuni,“ segir Atli Már Traustason, formaður félags sauðfjárbænda í Skagafirði. Sauðfjárbændur í Skagafirði ætla í næstu viku að funda um erfiða stöðu sauðfjárbænda en fundurinn verður í Ljósheimum þriðjudagskvöldið 15. febrúar og hefst klukkan 20:00.
„Við fáum engar hækkanir á afurðaverði til okkar, reyndar lækkun síðastliðið haust, á meðan öll okkar aðföng bara hækka og hækka. Sl. haust gerðist það að verð til bænda lækkaði í þrepum eftir því sem leið á sláturtíðina og eru menn hundfúlir yfir því. Á fundinn koma nokkrir sauðfjárbændur með rauntölur úr sínum rekstri þar sem sýnt verður fram á hvað allt hefur hækkað nema innkoman og afkoman versnað. Þá mun Jóhannes Sveinbjörnsson prófessor við Landbúnaðarháskóla Íslands halda fyrirlestur um áhrif mismunandi sláturtíma á afurðaverð auk fulltrúa héðan frá Leiðbeiningamiðstöðinni sem kryfja munu þróun í afurðaverðum og aðföngum. Fulltrúar stjórnvalda hafa ekki verið boðaðir á fundinn en þangað er boðið fulltrúum Kaupfélags Skagfirðinga sem er sláturleyfishafi flestra hér í héraði auk þess sem formaður og framkvæmdastjóri Landssamtaka sauðfjárbænda verða á staðnum,“ segir Atli.
Atli segir að komi sláturleyfishafar ekki með eitthvað betra tilboð til sauðfjárbænda næsta haust sé ljós að hver og einn verði að skoða sinn rekstur og taka í framhaldinu ákvörðun um hvað skynsamlegast sé að gera til framtíðar.
"Það verða allir aðilar sem koma að framleiðslu sauðfjárafurða á Íslandi að átta sig á því að staðan er grafalvarleg" segir Atli að lokum.