Greiðsla skerðist verði leikskólaplássi hafnað

Sveitastjórn Skagafjarðar hefur samþykkt tillögu félags- og tómstundanefndar um breytingu á niðurgreiðslu vegna daggæslu í heimahúsum en frá 1. september mun hún skerðast hafni foreldri leikskólaplássi.

Það er; „ Hafni foreldrar leikskólaplássi fyrir barn sem orðið er 18 mánaða helmingast niðurgreiðslan og fellur að fullu niður eftir 24 mánaða aldur barnsins.

• Ef um sérstakar félagslegar eða heilsufarslegar aðstæður er að ræða er hægt að sækja um undanþágu frá ofangreindum aldursmörkum til félags- og tómstundanefndar.“

Að öðru leyti eru reglurnar óbreyttar og gjaldskrá hin sama

Fleiri fréttir