Greiðslustofa húsnæðisbóta formlega opnuð á Sauðárkróki
Greiðslustofa húsnæðisbóta var formlega opnuð á Sauðárkróki í gær. Greiðslustofan er til húsi á annarri hæð við Ártorg 1 og þar hafa verið ráðnir 14 starfsmenn í jafn mörg stöðugildi.
Ný lög um húsnæðisbætur taka gildi 1. janúar 2017 og mun greiðslustofa húsnæðisbóta taka yfir verkefni sveitarfélaga varðandi útgreiðslu húsnæðisbóta. Það var Elsa Lára Arnardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi, sem opnaði formlega vef Greiðslustofunnar, husbot.is, við þetta tilefni. Elsa Lára sagðist þar með vera að fylgja barninu sínu úr hlaði, en hún starfaði í nefnd sem undirbjó hin nýju lög.
Auk Elsu Láru fluttu Þór Reykdal, forstöðumaður hinnar nýju greiðslustofu, og Gissur Pétursson, forstöðumaður Vinnumálastofnunar, ávörp við þetta tilefni. Þá flutti Elsa Lára kveðju frá Eygló Harðardóttur, félags- og húsnæðismálaráðherra, sem gat ekki verið viðstödd opnunina. Að því loknu skoðuðu gestir hið húsnæðið og þáðu veitingar.
Nú hefur verið opnað fyrir umsóknir um húsnæðisbætur á hinum nýja vef og þar er einnig að finna handhæga reiknivél fyrir umsækjendur.