Grettishátíðin hefst á föstudaginn

Grettishátíðin 2012 verður haldin dagana 27.-29. júlí nk. í Grettisbóli á Laugarbakka og að hluta til á Hvammstanga í tengslum við unglistarhátíðina Eldur í Húnaþingi. Bogar og bogfimi verða verða aðalsmerki föstudagsins þar sem meðferð boga verður kennd og hugað að bogasmíði.

Dagskrá Grettishátíðarinnar í ár er svohljóðandi:

Föstudagurinn 27. júlí
14:00 - Bogar og bogfimi, námskeið. Meðferð boga kennd og hugað að bogasmíði. Haldið í Grettisbóli á Laugarbakka. Fyrir börn og unglinga á öllum aldri.

Laugardagurinn 28. júlí

  • 12:00 - Víkingatjald, handverk, leikir og víkingar við félagsheimilið á Hvammstanga.
  • 14:00 - Bogfimikeppni á Hvammstanga, keppt í flokki vanra og óvanra.
  • 19:00 - Grettisból. Grillið gert klárt (þið mætið með kræsingarnar).
  • 20:00 - Ljóðaslamm, sögur og sagnir í Grettishringnum á Laugarbakka. Víkingaleikir á staðnum, m.a. kubbspil og hnefatafl, bogfimi og æfingar í aflraunum fyrir Grettisbikarinn. Öllum velkomið að mæta og njóta góðrar samveru.

Sunnudagurinn 29. júlí

  • 11:00 - Sögustund á Bjargi.
  • 12:00 - Spes sveitamarkaður opnar og víkingamarkaður á útisvæðum. Bogfimi og víkingaleikir í gangi.
  • 12:30 - Miðfjarðarmót í kubb.
  • 14:00 - Grettisbikarinn - aflraunakeppni karla og kvenna. Grettisbikar er veittur til sterkasta karlmanns og konu úr Húnaþingi vestra. Skráningar í aflraunakeppnina á staðnum. Sjá nánar um keppnina á www.grettistak.is.
  • 17:00 - Verðlaunaafhending.
  • 18:00 - Dagskrá lýkur.

Fleiri fréttir