Grillveisla fyrir sjálfboðaliða

Í dag kl 18 heldur Skagafjarðardeild Rauða krossins sjálfboðaliðum sínum grillveislu í húsnæði deildarinnar í Aðalgötu 10b. Sjálfboðaliðar og velunnarar deildarinnar eru hvattir til að fjölmenna og eiga saman góða stund. Nýir sjálfboðaliðar eru einnig velkomnir, en hægt verður að skrá sig sem sjálfboðaliða á staðnum.

Fleiri fréttir