Grindvíkingar of sterkir fyrir Stólana
Grindavík og Tindastóll mættust í 1. deildinni í knattspyrnu í gær suður með sjó. Leikur liðanna þótti skemmtilegur á að horfa þrátt fyrir að Grindavíkurgolan hafi gert leikmönnum lífið leitt. Heimamenn reyndust gæfuríkari upp við markið og sigruðu 4-1.
Stefán Þór Pálsson kom Grindavík yfir eftir 14 mínútna leik með skalla eftir aukaspyrnu og sjö mínútum síðar skoraði Juraj Grizelj annað markið beint úr hornspyrnu. Stólarnir, sem spiluðu ágætlega í leiknum, minnkuðu muninn skömmu síðar og þar var á ferðinni markamaskínan Atli Arnarson. Staðan 2-1 í hálfleik.
Á 62. mínútu skoraði Jóhann Helgason fyrir heimamenn og aftur kom markið eftir hornspyrnu en Tindastólsmönnum gekk brösulega að verjast föstum leikatriðum Grindvíkinga. Fjórða markið gerðu Grindvíkingar síðan á 79. mínútu og þar var á ferðinni óli Baldur Bjarnason og lokatölur 4-1.
Lið Tindastóls er nú í sjöunda sæti í 1. deild með 5 stig eftir fjóra leiki. Í viðtali við Fótbolta.net sagði Donni þjálfari meðal annars: ,,Það verður erfitt fyrir öll lið að koma og spila hér í Grindavík. Mér fannst við leysa leikinn fínt úti á velli, spiluðum góðan fótbolta og ég var ánægður með mitt lið þar. Við fáum á okkur úr föstum leikatriðum og ég var mjög ósáttur með það og þeir sköpuðu núll færi fyrir utan föst leikatriði. Ég er sáttur við margt þrátt fyrir 4-1 tap, en það þýðir ekkert annað en að halda áfram og gefa meira í þetta," sagði Donni eftir leik.