Grunnskólamót hestamannafélaganna

Keppt var um þennan glæsilega bikar sem gefinn var af sparisjóðunum á Hvammstanga, Skagafirði og Siglufirði

Æskulýðsnefndir hestamannnafélaganna í Skagafirði og Húnavatnssýslum funduðu fyrir helgi og ákváðu fyrirkomulag Grunnskólamóts Hestamannafélaganna í vetur.

Samskonar stigafyrirkomulag verður í vetur eins og á fyrra ári þar sem krakkarnir safna stigum fyrir sinn skóla. Ákveðið var að keppa í pollaflokki og skeiði á hverjum stað.

 Grunnskólamót Hestamannafélaganna verða á:

Blönduósi, 21. febrúar. Keppt verður í smala, pollaflokki og skeiði.
Hvammstanga, 7. mars. Keppt verður í þrígangi - fjórgangi, pollaflokki og skeiði.
Sauðárkróki, 18. apríl. Keppt veður í tölti, pollaflokki og skeiði.

Fleiri fréttir