Grunnskóli Húnaþings vestra í úrslitum í Skólahreysti
Á morgun fimmtudaginn, 28. apríl fer fram í Laugardalshöllinni úrslitakeppnin í Skólahreysti og munu þjú ungmenni úr Grunnskóla Húnaþings vestra verða meðal keppenda en það eru þau Elmar Baldursson, Guðni Skúlason, Guðrún Helga Magnúsdóttir og Rakel Ósk Ólafsdóttir.
Sjónvarpið hefur gert keppninni góð skil í vetur og gátu landsmenn fylgst með er þessir mögnuðu krakkar unnu sinn riðil í riðlakeppninni og komust áfram í úrslitakeppnina ásamt ellefu öðrum liðum.
Keppnin hefst kl. 20:00, verður bein útsending frá keppninni á RÚV.