Guðmundur yfirgefur Framsókn

„Þetta kom á óvart, við vissum ekkert af þessu fyrr en blaðamenn fóru að hringja í mig ,“ segir Gunnar Bragi Sveinsson þegar hann er inntur um viðbrögð við úrsögn Guðmundar Steingrímssonar úr Framsóknarflokknum í gær.

Gunnar Bragi segir að Guðmundur hafi áður en blaðamenn fóru að grafast fyrir um málið ekki sagt félögum sínum í þingflokknum frá ákvörðun sinni. „Hann hafði verið stutt í flokknum og spurning hvort hann hefði ekki átt að gefa þessu aðeins meiri sjens en þetta er hans val og ég virði það og óska honum alls hins besta,“ sagði Gunnar Bragi.

Sjálfur segist Gunnar Bragi hafa gengið í gegnum tíma þar sem formaður hans, þá Halldór Ásgrímsson, var að móta stefnu sem fór þvert á hans skoðanir hvað Evrópumál snerti. „En það var margt annað sem hélt í mann og maður stökk ekki frá borði.“

Gunnari Braga er ekki kunnugt um að félagar í kjördæminu hafi fylgt Guðmundi úr flokknum.

Fleiri fréttir