Gunnar Sigurjón Steingrímsson yfirhafnarvörður lætur af störfum

Einar Á. Gíslason og Gunnar S. Steingrímsson. Ljósm./skagafjordur.is
Einar Á. Gíslason og Gunnar S. Steingrímsson. Ljósm./skagafjordur.is

Gunnar Sigurjón Steingrímsson, yfirhafnarvörður hjá Skagafjarðarhöfnum, lét af störfum í síðustu viku eftir 16 ár hjá Sveitarfélaginu Skagafirði. „Honum [eru] færðar þakkir fyrir vel unnin störf í þágu sveitarfélagsins,“ segir á vef Svf. Skagafjarðar.

Við starfi hans tekur Einar Ágúst Gíslason, fæddur og uppalinn í Skagafirðinum.  „Við bjóðum Einar velkominn til starfa og  óskum honum velfarnaðar í nýju starfi,“ segir loks á vefnum. 

Fleiri fréttir