Gyrðir Elíasson hlýtur Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs 2011

Gyrðir Elíasson hlýtur Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs 2011 fyrir smásagnasafnið Milli trjánna en í rökstuðningi dómnefndar segir: „Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs 2011 hlýtur íslenski rithöfundurinn Gyrðir Elíasson fyrir smásagnasafnið „Milli trjánna", stílhreint og framúrskarandi skáldverk sem lýsir innri og ytri átökum og er í samræðu við heimsbókmenntirnar."

Gyrðir Elíasson sem lengi bjó á Sauðárkróki gaf út sína fyrstu bók árið 1983, Svarthvít axlabönd. Eftir hann hafa komið út fjölmargar  smásagna- og ljóðabækur og fimm skáldsögur. 13 rithöfundar frá Norðurlöndunum og sjálfstjórnarsvæðunum voru að þessu sinni tilnefndir til verðlaunanna.

Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs nema 350.000 dönskum krónum, nær 7,5 milljónum íslenskra króna. Gyrðir Elíasson mun veita verðlaununum viðtöku á Norðurlandaráðsþinginu 2. nóvember 2011 í Kaupmannahöfn.

Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs hafa verið veitt allt frá árinu 1962 og  fagna því hálfrar aldar afmæli í ár og eru þau veitt fyrir fagurbókmenntir sem ritaðar eru á norrænu tungumáli. Það geta verið skáldsögur, leikrit, ljóða-, smásagna- eða ritgerðasöfn og önnur bókmenntaverk. Markmið verðlaunaveitingarinnar er að auka áhuga Norðurlandabúa á bókmenntum og tungumáli nágrannalandanna og á sameiginlegri menningararfleifð Norðurlanda.

Fleiri fréttir