Gyrðir Elíasson tók við Bókmenntaverðlaunum Norðurlandaráðs

Gyrðir Elíasson rithöfundur veitti bókmenntaverðlaunum Norðurlandaráðs viðtöku í gærkvöldi við hátíðlega athöfn í Konunglega tónlistarskólanum í Kaupmannahöfn.

Gyrðir hlaut verðlaunin fyrir smásagnasafnið Milli trjánna en í umsögn dómnefndar segir að Milli trjánna sé stílhreint og framúrskarandi skáldverk sem lýsir innri og ytri átökum og að það sé í samræðu við heimsbókmenntirnar.

Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs nema 350.000 dönskum krónum eða um 7,5 milljónum íslenskra króna og sagði Gyrðir í viðtali við rúv að hann væri þegar búinn að ákveða í hvað hann ætlaði að nota verðlaunaféð. Hann hefur augastað á litlum sumarbústað útí sveit þar sem hann getur fengið ró og næði til að skrifa.

Hér má innslagið úr kvöldfréttum rúv.

 

 

 

 

Fleiri fréttir