Hækkun á gjaldskrám á fræðslusviði

Á fundi sínum þann 13. þ.m. samþykkti fræðslunefnd Svf. Skagafjarðar fyrir sitt leyti hækkun á leikskóladvöl og dvöl í heilsdagsskólum (Árvist) um 9% frá áramótum og fæðisgjöld í leikskólum, grunnskólum og heilsdagsskóla um 13% frá sama tíma að telja.

 

Þá samþykkti fræðslunefndin hækkun á gjöldum í Tónlistarskóla Skagafjarðar um 3% frá áramótum. Samþykkt fræðslunefndar er birt með fyrirvara um samþykki sveitarstjórnar.

/Skagafjörður.is

Fleiri fréttir