Hænsnakofi brann til kaldra kola
Betur fór en á horfðist þegar hænsnakofi við Grunnskóla Húnaþings vestra á Laugarbakka brann aðfaranótt fimmtudags, Norðanáttin greinir frá þessu. Flestum íbúum kofans virðist ekki hafa orðið meint af en 18 hænur voru taldar eftir brunann, en samkvæmt heimildum áttu þær að vera 19 talsins.
Kofinn stóð við íþróttavöllinn á Laugarbakka og hefur gegnt ýmsum hlutverkum í gegnum tíðina, m.a. sem hesthús, áhaldahús og nú síðast hænsnakofi.
„Það var á fimmta tímanum í nótt sem slökkviliðinu barst tilkynning um brunann. Sigurvin Dúi Bjarkason og Sveinn Guðmannsson voru fyrstir á vettvang og hringdu neyðarlínuna, en Indriði Benediktsson á Syðri-Reykjum hafði einnig orðið eldsins var. Indriði sótti töng til að hægt væri að klippa gat á hænsnanetið og hleypa hænunum út en þær höfðu safnast saman í eitt hornið innan hænsnagirðingarinnar,“ segir um atvikið á Norðanáttinni sl. fimmtudag.
Myndir af vettvangi má skoða hér á Norðanáttinni.