Hætt að lítast á blikuna
Lögreglan á Norðurlandi vestra varar við miklum sprungum sem myndast hafa í Ketubjörgum í Syðri-Bjargavík á Skaga. Lögreglan hefur girt svæðið af og er allur aðgangur bannaður af öryggisástæðum. Málið var til umfjöllunar í byggðaráði Skagafjarðar sl. fimmtudag, líkt áður hefur verið greint frá á Feyki.is, en þarna er vinsæll útsýnisstaður ferðamanna yfir björgin og út á Skagafjörðinn.
Stefán Vagn Stefánsson, yfirlögregluþjónn á Sauðárkróki og formaður byggðaráðs, segir í samtali við Morgunblaðið sl. laugardag að sprungan sé sérstök að því leyti að hún gangi þvert á landslagið á löngum kafla, ekki bara í einu bjargi þó að hún sé mest áberandi þar. Þar sé bjargið í raun orðið laust frá klettunum og geti fallið í sjó fram á hverri stundu.Lausa bjargið er um átta metrar á breidd efst og 50-60 metra hátt.
Málið er til skoðunar, í samráði við jarðvísindamenn, hvað beri að gera í framhaldinu til að koma í veg fyrir slys. Til greina kemur að sprengja lausa bjargið frá en það sé með öllu óákveðið á þessu stigi, að sögn Stefáns Vagns, fara þurfi varlega þar sem um viðkvæmar náttúruminjar sé að ræða en mikil hætta er á hruni þegar frost fer úr jörðu.
Fyrst vör við sprunguna í fyrravor
Rætt er við Hrefnu Gunnsteinsdóttur, bónda á Ketu, í frétt Morgunblaðsins. Hún segir mikið landbrot hafa átt sér stað í bjarginu í gegnum tíðina en nú sé meiri umferð ferðamanna á svæðinu en hún hafi nokkurn tímann kynnst á Skaga, bæði sumar og vetur.
Hún varð fyrst vör við sprunguna í fyrravor en síðan kom líka sprunga hinum megin við björgin, sem sést vel frá veginum.
Hrefna er með kartöflugarð skammt frá sprungunni sem er nær Ketu. „Ég var að taka upp kartöflur í haust þegar ég sá ferðamenn koma þarna gangandi niður eftir. Þeir voru komnir út á nibbuna sem er laus, og þá hætti mér að lítast á blikuna,“ sagði Hrefna sem hefur einnig áhyggjur af öryggi búfénaðar á þessum slóðum.
„Ég vona bara að þetta fari þegar klakinn fer úr jörð. Bjargið innan við gliðnar mjög hratt og þetta er orðið sprungið alveg niður í mitt bergið.“