Hagnaður Króksblóts til góðra mála

Þó ekki sé hlutverk eða tilgangur þorrablótsnefndarinnar á Sauðárkróki að skila hagnaði á Króksblóti er þó betra að gert sé upp réttu megin við núllið og hefur það gengið eftir þau tvö ár sem blótið hefur verið haldið. Sá peningur sem eftir stendur þegar allir reikningar hafa verið gerðir upp hafa runnið til góðgerðamála.

Eftir síðasta blót var ákveðin upphæð sett í sérstakan þorrablótssjóð sem gæti orðið einhverskonar trygging fyrir næstu nefndir ef eitthvað vantar upp á því upphafskostnaður fyrir hvert blót er töluverður. Sex fulltrúar sitja í stjórn þorrablótssjóðsins frá þremur árgöngum, fráfarandi- núverandi og komandi árgangi og hafa þeir umsjón með og bera ábyrgð á honum.

Ákveðið var að hluti af hagnaðinum færi til góðgerðamála og að þessu sinni var ákveðið að styrkja ungan Skagfirðing, Ingva Guðmundsson, sem háð hefur baráttu við veikindi undanfarin misseri.

Einnig naut björgunarsveitin Skagfirðingasveit góðs af hagnaðinum því ofan á fast gjald sem hún tók fyrir dyravörslu og aðra vinnu kringum blótið fékk hún 10% hlutdeild í hagnaði.

Þorrablótsnefndin, árgangur 1958, sem nú skilar af sér þakkar öllum þeim fjölmörgu sem komu að blótinu á einn eða annan hátt og segir það komið til að vera.

Fleiri fréttir