Halldór og Hildur með tjaldsvæði sveitarfélagsins

Undirritaður hefur verið samningur við Halldór Gunnlaugsson og Hildi Magnúsdóttur varðandi rekstur tjaldsvæðanna í Skagafirði, á Sauðárkróki, Hofsósi og í Varmahlíð. Samningurinn gildir til fimm ára.

Halldór og Hildur eru nýflutt til Skagafjarðar frá Danmörku með þrjú börn. Þau hafa brennandi áhuga á ferðamálum og langar að gerast þátttakendur í því að gera Skagafjörð að ennþá eftirsóknaverðari og áhugaverðari áfangastað.

Hægt er að hafa samband við Halldór og Hildi í síma 899 3231 eða á tjaldstaedi@gmail.com

Fleiri fréttir