Hamingju helgi hjá þjálfurum Tindastóls/Hvatar
Á heimasíðu knattspyrnudeildar Tindastóls kemur fram að þjálfarar meistaraflokks þeir Donni og Haukur Skúla stóðu í ströngu núna um helgina en á laugardaginn slógu þeir upp sitthvorri veislunni
Tilefnið hjá Hauki var að skíra frumburðinn sem fæddist núna í júlí og fékk strákurinn feykigott fótboltanafn eða Björgvin Skúli Hauksson. Væntanlegur hægri kantur þar á ferðinni.
Donni átti ekki síðri dag en strákurinn tók upp á því að ganga í hnapphelduna, ganga út, festa ráð sitt og giftast henni Heru sinni með pompi og prakt.
Mikil hamingja og knattspyrnudeild Tindastóls óskar strákunum og spúsum þeirra innilega til hamingju. Feykir.is tekur undir þau orð.