Handverkshús í Varmahlíð
Atvinnu og ferðamálanefnd Skagafjarðar hefur tekið vel í erindi Alþýðulistar þar sem félagið óskar eftir aðstoð við rekstur handverkshúss í Varmahlíð í núverandi húsnæði upplýsingamiðstöðvarinnar.
Handverkshús hefur verið rekið samhliða upplýsingamiðstöðinni í Varmahlíð en nú hefur verið gengið frá samningi við KS Varmahlíð sem mun frá vori taka við rekstri upplýsingamiðstöðvar. Hefur nefndin ákveðið að styrkja rekstur handverkshúss í Varmahlíð á komandi sumri með niðurfellingu á hluta af kostnaði við rekstur hússins. Var sviðsstjóra falið að ganga til samninga við félagið um útfærslu á málinu.