Hannes Pétursson heiðraður með fallegri hleðslu

Margir hafa veitt athygli fallegri skeifu sem nýlega var hlaðin skammt frá útsýnisskífu á Nöfunum ofan við Sauðárkróki. Skeifan er til heiðurs hinu merka skagfirska skáldi, Hannesi Péturssyni en hugmyndin fæddist hjá frænda hans Sigurði Svavarssyni, bókaútgefanda hjá Opnu bókaútgáfu.
Skeifan er hlaðin af Helga Sigurðssyni hleðslumeistara frá Stóru-Ökrum. Er hún bein tilvísun í Jarðlag í tímann þar sem Hannes tekur sér stöðu á Nöfunum og "skyggnist yfir svið bernsku sinnar norður í Skagafirði, rifjar upp mannlífið á Króknum, sumrin frammi í sveit, vegagerð á stríðsárunum og dregur upp minnisstæðar myndir af samferðamönnum í listilega smíðuðum frásögnum.
Skeifan sjálf á að veita vegfarendum eitthvert skjól, a.m.k. fyrir Skarðagolunni svokölluðu, en veita samt útsýni yfir gamla bæinn á Króknum, sem voru æskuslóðir Hannesar, og um leið Skagafjörðinn. Inni í skeifunni á að koma bekkur og fyrir framan bekkinn á að steypa tvenn fótspor, annars vegar barns og hins vegar fullorðins manns, og vísa þannig í frásagnir og minningabrot bókarinnar. Fyrir ofan bekkinn mun svo koma koparplatti með tilvitnun og upplýsingum um Hannes.
Sveitarfélagið Skagafjörður er framkvæmdaraðili og kostar verkið að mestu en það hefur jafnframt fengið styrki frá Menningarsjóði KS og Uppbyggingarsjóði Norðurlands vestra.