Harma ráðstöfun RÚV um að leggja niður starfstöð sína á Sauðárkróki

„Byggðarráð Sveitarfélagsins Skagafjarðar harmar þá ráðstöfun Ríkisútvarps allra landsmanna að leggja niður starfstöð sína á Sauðárkróki á sama tíma og stofnunin boðar eflingu starfsemi sinnar á landsbyggðinni,“ segir í bókun sem samþykkt samhljóða á Byggðaráðsfundi Svf. Skagafjarðar sl. fimmtudag.

Í bókuninni segir ennfremur að mikilvægt sé að Ríkisútvarpið sé sýnilegt í starfsemi sinni um allt land og er Norðurland vestra þar ekki undanskilið.

„Sveitarfélagið Skagafjörður hefur stutt vel við starfsemi Ríkisútvarpsins og greitt húsaleigu fyrir upptöku- og útsendingaraðstöðu RÚV á Sauðárkróki í áratug. Frá hljóðverinu hefur verið sinnt dagskrárgerð og beinar útsendingar sendar þaðan, meðal annars sá vinsæli þáttur Á sagnaslóð sem nú hefur verið lagður af. Byggðarráð skorar á útvarpsstjóra og Ríkisútvarpið að endurvekja metnaðarfulla dagskrárgerð og fréttaflutning frá landshlutanum,“ segir í bókuninni.

Byggðarráð samþykkir að fela sveitarstjóra að óska eftir fundi með útvarpsstjóra.

Fleiri fréttir