Háskólaráð ályktar
feykir.is
Skagafjörður, Uncategorized
13.07.2015
kl. 09.42
Háskólaráð Háskólans á Hólum fundaði þann 19. júní sl. um meðal annars uppbyggingu skólastarfs á Hólum. Háskólaráð var sammála um það að nauðsynlegt sé að tryggja fjölbreytt námsframboð íslenskra háskóla og lögðu einnig mikla áherslu á eflingu nets opinberu háskólanna. Ráðið ítrekar mikilvægi þess að allar ákvarðanir um sameiningar eða aðrar breytingar á starfsumhverfi háskóla byggi á faglegum greiningum og ráðgjöf sérfróðra aðila.
Ályktunina í heild sinni má lesa hér.