Háskólinn á Hólum og Þelamerkurháskóli í Erasmus samstarfi
feykir.is
Skagafjörður
03.03.2015
kl. 09.20
Í síðustu viku heimsótti deildarstjóri ferðamáladeildar Háskólans á Hólum, dr. Georgette Leah Burns, Þelamerkurháskóla í Noregi, vegna samstarfs skólanna undir merkum Erasmus plús. Í heimsókninni flutti Leah fyrirlestra um náttúrutengda ferðaþjónustu og um stýringu gesta á vernduðum svæðum.
Þá flutti Leah erindið „From Dingoes to Seals: Exploring the Ethics of Managing Wildlife Tourism." Fyrsta heimsókn starfsmanns ferðamáladeildar Hólaskóla var í febrúar og einn af nemendum Þelamerkurháskóla er skiptinemi við fiskeldis- fiskalíffræðideild á yfirstandandi vorönn, eins og greint er frá á vef Háskólans á Hólum.