Hátíðarmessa og kaffiboð
Á morgun er fyrsti sunnudagur í aðventu sem markar upphaf jólaföstunnar og er jafnframt fyrsti dagur kirkjuársins. Í tilefni þessa verður haldin gæðastund fyrir börn og fullorðna í Sauðárkrókskirkju og hátíðarmessa kl. 14:00. Í hátíðarmessunni leiðir kirkjukórinn söng en sungnir verða fallegir aðventusálmar og fermingarbörn ætla að lesa ritnigarlestra. Eftir messu býður Kvenfélag Skarðshrepps til kaffisamsætis í safnaðarheimilinu.
Að sögn Sigrúnar Aadnegard kvenfélagskonu, hefur kaffisamsætið verið haldið í mörg ár af Kvenfélagi Skarðshrepps en auk kaffiboðsins hefur félagið einnig lagt peninga til fjölskylduhjálpar kirkjunnar. Sigrún segir að hundrað þúsund krónur verði nú lagðar í sjóðinn af kvenfélaginu. Allir eru hvattir til að mæta í kirkju og taka á móti anda jólanna og njóta góðra veitinga.