Haukastúlkur númeri of stórar fyrir Tindastól

Í gær heimsóttu Haukastúlkur úr Hafnarfirði Tindastól í fyrstu deild kvenna og háðu harða baráttu við ungt lið norðankvenna og höfðu verðskuldaðan sigur sem kom þeim á topp deildarinnar.

Það var erfitt verk fyrir Tindastól að sækja að marki Hauka sem réðu gangi leiksins allan tímann en strax á 4. mínútu þurftu Tindastólsstúlkur að sækja boltann í netið. Þær sýndu þó mikla þrautseigju og vörðust af kappi en nóg var að gera hjá Tótu í markinu sem var betri en engin á milli stanganna. Hún varði hvert skotið af öðru og átti heiðurinn af því að ekki var skorað meira í fyrri hálfleik.

Í seinni hálfleiknum var sama upp á teningnum, Haukar skora í upphafi leiktímans en Tindastólsstúlkur eiga fáar sóknir sem skapa færi. Þegar yfir lauk höfðu Haukarstúlkur skorað 5 mörk gegn engu og verður að segjast eins og er að þaðhafi verið sanngjarn sigur. Það er greinilegt að Haukar leggja mikið í að komast í úrvalsdeildina þar sem þeir hafa fengið 3 erlenda leikmenn til liðs við sig en einn þeirra Brooke Barbuto skoraði þrennu í leiknum.

Bjarki Már þjálfari Tindastóls sagði að fyrirfram var búist við erfiðum leik en hann var mjög sáttur við sitt lið sem lagði sig fram og barðist vel og gerðu sitt besta. Meiðsli eru að hrjá liðið sem gerir stöðuna erfiðari og er vonandi að fari að rætast úr.

Næsti leikur er úti gegn Fram og telur Bjarki að þar gæti náðst hagstæð úrslit sem skiptir miklu máli enda Framliðið í sama styrkleikaflokki og Tindastóll.

Fleiri fréttir