Hefur gefið tæpar 28 milljónir króna til tækjakaupa

Aðalfundur Hollvinasamtaka Heilbrigðisstofnunar Hvammstanga var haldinn þann 19. júní sl. en þar var m.a. farið yfir starfsemi Hollvinasamtakana yfir árið og þá var einnig kosið í stjórn samtakana fyrir næsta starfsár.

Samkvæmt fréttatilkynningu hafa Hollvinasamtökin gefið samtals tæpar 28 milljónir króna til tækjakaupa fyrir Heilbrigðisstofnun Vesturlands Hvammstanga, frá stofnun þeirra árið 2006. Þar af voru á síðastliðnu starfsári keypt tæki fyrir um 1,5 milljónir króna. Þar ber helst að telja:

  • sótthreinsunartæki,
  • búnað vegna fiskabúrs,
  • blóðþrýstingsmæli,
  • súrefnismettunarmæli
  • sjónprófunarskjá

Á haustmánuðum var ennfremur tekin sú ákvörðun að hollvinasamtökin kæmu að kaupum á nýju bjöllukerfi fyrir hjúkrunar og sjúkradeild og voru lagðar alls 3,5 milljónir til þess verkefnis á þessu ári, en Velferðarráðuneytið fjármagnaði hinn hlutann. Alls kostaði bjöllukerfið uppkomið um 8 milljónir króna.

Stjórn og skoðunarmenn voru endurjörin en stjórnina skipa: Árndís Alda Jónsdóttir, Björn Líndal Traustason,  Elín R. Líndal, Guðrún Elín Benónýsdóttir formaður og Kristín Jóhannesdóttir. Varamenn eru: Helga Hreiðarsdóttir og Þorgerður Sigurjónsdóttir. Skoðunarmenn reikninga eru: Elín Ása Ólafsdóttir og Karl Sigurgeirsson.

Fjárframlög til Hollvinasamtakanna má merkja ákveðinni starfsemi við Heilbrigðisstofnunina. Óskilyrtum fjárframlögum ráðstafar stjórn samtakanna í samræmi við markmið þeirra. Þeir sem hafa hug á að gefa til Hollvinasamtakanna geta sett sig í samband við einhvern úr stjórn samtakanna. Einnig er hægt að leggja beint inn á reikning samtakanna í Landsbankanum á Hvammstanga, númer 0159-15-200135 og kennitalan er 711006-2140.

Félagar teljast þeir sem greiða árgjöld samtakanna. Fyrirtæki, félagasamtök og opinberir aðilar geta orðið styrktarfélagar. Þeir sem hafa áhuga á að gerast félagsmenn geta haft samband við stjórnarmenn. Árgjald félagsins er 1000 krónur.

 

Fleiri fréttir