Heiðursstaða í Kirkjuklaufinni
Fólk fjölmennti í Kirkjuklaufina á Sauðárkróki í dag til að votta Páli Ragnarssyni virðingu sína er líkfylgd hans fór hjá á leið sinni í kirkjugarðinn á Nöfum. Áætlað er að liðlega hundrað manns hafi raðað sér upp beggja vegna götunnar og sýndu þar með þakklæti sitt til Páls sem hefur í gegnum tíðina verið áberandi í bæjarlífinu á Króknum.
Páll starfrækti tannlæknastofu á Sauðárkróki og var öflugur í félagsmálum í bænum, var farsæll formaður Ungmennafélagsins Tindastóls til 30 ára og óþreytandi í uppbyggingavinnu fyrir félagið á öllum sviðum. Einkum átti fótboltinn hug hans og margir Króksarar sem minnast Páls á og við knattspyrnuvöllinn. Gullmerki fékk hann fyrir störf sín frá ÍSÍ árið 1982 og gullmerki UMFÍ 2007 og sama ár varð hann heiðursfélagi Tindastóls. Einnig hlotnaðist honum sá heiður að fá silfur- og gullmerki KSÍ.
Þá var hann virkur í starfi Sjálfstæðisflokksins á Sauðárkróki og átti m.a. sæti á lista í bæjarstjórnarkosningum og í ýmsum nefndum fyrir flokkinn.
Eftirlifandi eiginkona Páls er Margrét Steingrímsdóttir hjúkrunarfræðingur. Börn þeirra eru Ragnar, Helga Margrét og Anna Rósa og eru barnabörnin sjö talsins.
Útför Páls fór fram í dag og fyrir áhugasama er hægt að nálgast upptöku af athöfninni HÉR