Heillandi hugvit!
Fröken Fabjúlöss hefur svo oft á sínum netrúntferli rekist á eitthvað sem seint getur fallið undir aðra kategóríu en að vera brilliant!
Það er nú einusinni þannig að á meðan venjuleg manneskja eins og Fröken Fabjúlöss horfir á tóma plastflösku og hugsar "smellissu í endurvinnsluna og fá 14 krónur" þá eru til manneskjur í hinni víðu veröld sem horfa á nákvæmlega sama hlut og hugsa "nei vá hvað get ég nú búið til úr þessu", hugvitið fer á fullt og verður afraksturinn einhver dásemdarsnilld sem mun auðvelda fullt af fólki lífið eða fegra umhverfi margra.
Þetta er eitt af því sem heillar Fröken Fabjúlöss við internetið! Hugvitsmanneskjur nútímans eru dásamlegar, sniðugar og örlátar á að deila hugvitinu með sótsvörtum almúganum!
Fröken Fabjúlöss hefur ákveðið að myndirnar tali mestu máli og hvetur alla til að kíkja á galleríið hér að neðan! Flestar eru myndirnar fengnar að láni frá littlewhitelion.com