Heilluð af töframanninum
Á mánudaginn var töframaðurinn Einar Mikael með sýninguna Heimur sjónhverfinga á sal FNV á Sauðárkróki. Sýningin er troðfull af mögnuðum sjónhverfingum og drepfyndnum göldrum og það var þétt setinn bekkurinn sem fylgdist með einhverjum þeim mögnuðustu sjónhverfingum sem sést hafa hérlendis.
Það voru margar hendur á lofti þegar Einar bauð sjálfboðaliðum úr sal að aðstoða sig með galdrana. Á fáeinum mínútum tókst að töfra smápeninga úr eyrum viðstaddra, týna endalausa muni upp úr litlum töfrahatt og láti borð fljúga. Lifandi dúfur voru á staðnum og kona var söguð í sundur.
Feykir leit inn á sýninguna og smellti af meðfylgjandi myndum.