Heimilislegt kosningakaffi Regnbogans á kjördag
Það verður heimilislegt um að litast hjá stuðningsfólki Jóns Bjarnasonar og frambjóðenda xJ listans á kjördag en þá verður boðið í vöfflur og kosningakaffi á Sauðárkróki hjá Sigurlaugu í Jöklatúni 18 frá 14-17 og hjá Helgu Bjarna í Furulundi 4 Varmahlíð.
Í tilkynningu frá Regnboganum segir að þeir sem þarfnist aðstoðar eða upplýsinga á kjördag geti haft samband í síma 8628347.
„Verið öll hjartanlega velkomin. Njótum dagsins!“