Heimir með opnunartónleika Reykholtshátíðar
Karlakórinn Heimir verður með opnunartónleika Reykholtshátíðar í ár. Bera þeir yfirskriftina „Sveinar kátir syngið.“ Stefán R. Gíslason stjórnar kórnum og meðleikari er Thomas R. Higgerson. Einsöngvarar eru Þóra Einarsdóttir, sópran, og Ari Jóhann Sigurðsson, tenór.
Hljóðfæraleikarar á tónleikunum verða Berglind Stefánsdóttir, flauta, Ari Þór Vilhjálmsson, fiðla, Atte Kilpelaninen, lágfiðla og Sigurgeir Agnarsson, selló. Tónleikarnir verða í Reykholtskirkju föstudaginn 24. júlí og hefjast þeir kl. 20.