Heimir syngur fyrir sunnan
Karlakórinn Heimir ætlar að halda sínu striki með tónleika í Guðríðarkirkju í Reykjavík nk. laugardag kl. 17.30, þó að Karlakór Reykjavíkur hafi orðið að segja sig frá tónleikunum, Tveir góðir saman, vegna óviðráðanlegra orsaka.
Fyrri tónleikarnir, sem vera áttu kl. 15, hafa verið felldir niður af þessum ástæðum. Miðasala heldur áfram á midi.is á tónleika Heimis kl. 17.30, og þeir sem höfðu keypt miða á tónleikana kl. 15 geta fengið þeim breytt á þá seinni, eða fengið endurgreitt. Miðar verða einnig seldir við innganginn í kirkjunni á laugardaginn. Heimismenn verða eftir sem áður með tónleika í Reykholti í Borgarfirði á föstudagskvöldið kl. 20.30.
,,Félagar í Karlakór Reykjavíkur hafa hvatt okkur til að halda okkar striki og hvetja fólk til að fjölmenna á tónleikana þó að þeir verði ekki með," segir Gísli Árnason, formaður Heimis.
Söngstjóri Heimis er Helga Rós Indriðadóttir og Thomas R. Higgerson undirleikari. Á dagskrá tónleikanna í suðurferð Heimis verða nokkur lög af Vínartónleikum kórsins í janúar sl. auk annarra laga, innlendra sem erlendra.