Heimismenn halda suður í dag

Heimismenn eru hvergi bangnir þrátt fyrir slæma veðurspá, segjast aðspurðir vera búnir að pakka regngöllum og vaðstígvélum, tilbúnir að leggja af stað í tónleikaferð suður á bóginn í dag.

Í kvöld verða tónleikar á Akranesi, á heimvelli kórstjórans Sveins Arnars Sæmundssonar, og mikil tilhlökkun í kórmönnum að koma á Skagann, enda oft sungið þar áður og þar bregst stemningin ekki.

Þór Breiðfjörð kemur til liðs við kórinn og endurtekur leikinn síðan á þrettándatónleikunum, einsöngvarar úr röðum kórmanna verða Einar Halldórsson og Ari Jóhann Sigurðarson. Forsala á tónleikana á Akranesi er í versluninni Bjargi.

Liðsstyrkur í Langholtskirkju

Á laugardaginn verða svo tvennir tónleikar í Langholtskirkju, kl. 14 og 17.  Á þessum tónleikum bætist þeim Heimismönnum heldur betur liðsstyrkur, nefnilega „dömukór“ Langholtskirkju, Graduale Nobili.

Stúlkurnar rifja upp takta úr sérstakri karlakóradagskrá sem þær fluttu í fyrra við góðan orðstír, m.a. í Miðgarði þar sem Heimismenn tóku líka þátt. Einnig koma fram einsöngvarnir Ari Jóhann og Einar.

Forsala á tónleikana í Langholtskirkju er á midi.is, miðar verða einnig seldir við innganginn, segir í fréttatilkynningu frá Heimismönnum.

Fleiri fréttir