Heimsfrumlestur í Gallerí Lafleur
Á morgun laugardag klukkan þrjú mun Hilmir Jóhannesson bjóða upp á heimsfrumlestur eins og Lafleur kallar það í Gallarí Lafleur við Aðalgötu á Sauðárkróki.
Mun Hilmir lesa upp úr nýrri skáldsögu sinni,Gollar - íslendingasögu með vísum.
Opið verður í Galleríinu allan daginn og hefst dagskráin með Krakka yoga kl. 11.00 síðan taka við bókaupplestur og lifandi tónlist um daginn
veitingar og aðgangur ókeypis!