Heitu vatni hleypt á stofnlögn í Fljótum
Heitu vatni var hleypt á stofnlögn í Fljótum mánudaginn í síðustu viku, frá dælustöð í landi Langhúsa og að dælustöð við Molastaði, samtals um 8km leið. Greint er frá þessu á vef Skagafjarðarveitna.
Þá var hleypt vatni á stofnlögn frá Molastöðum og að Hvammi sl. fimmtudag, samtals um 3,3km leið. Á síðu Skagafjarðarveitna segir að stefnt er að áhleypingu að enda stofnlagnar við Depla á næstu dögum, þá verður búið að hleypa vatni á alla stofnlögnina, samtals rúmlega 18km.
„Verktaki vinnur þessa dagana að lagningu heimæða og verða væntanlega einhverjir notendur farnir að njóta heita vatnsins fyrir áramót,“ segir loks á síðunni.
Á meðfylgjandi mynd, af vef Skagafjarðarveitna, má sjá Gunnar Björn Rögnvaldsson ræsa dæluna í dæluhúsi við Langhús.