Héldu tombólu til styrktar Rauða Krossinum

Þessar vösku stelpur á Sauðárkróki héldu tombólu til styrktar Rauða Krossinum og söfnuðu alls 7805 krónum. Á myndinni eru Rakel Sif Davíðsdóttir og Sara Líf Elvarsdóttir en Svanbjörtu Hrund Jónsdóttur vantar á myndina. „Rauði Krossinn kann þeim kærar þakkir fyrir,“ segir í tilkynningu frá Skagafjarðardeild RKÍ.
Á rkí.is segir að um það bil 600 börn halda tombólur fyrir Rauða krossinn á hverju ári. Þau eru yngstu sjálfboðaliðar Rauða krossins og hafa í gegnum árin sýnt ótrúlega hugmyndaauðgi þegar kemur að fjáröflun fyrir gott málefni.
„Stuðningur tombólubarna á hverju ári er Rauða krossinum ákaflega mikils virði og er félagið þakklátt fyrir eljuna og dugnaðinn sem liggur að baki hverri tombólu og fjáröflun þessara yngstu sjálfboðaliða okkar. Tombólubörnin söfnuðu rúmlega 1 milljón króna á síðasta ári og allt það fé fór til styrktar börnum í Gambíu,“ segir á síðunni.