Helga Margrét bætir árangur sinn í kúluvarpi

Helga Margrét Þorsteinsdóttir sjöþrautarkonan úr Ármanni bætti sig í kúluvarpi um helgina á alþjóðlegu móti, World Indoor Throwing, í Växjö í Svíþjóð. Árangur Helgu Margrétar er nýtt Íslandsmet ungkvenna, flokki 20-22 ára,  og hafnaði hún í þriðja sæti á mótinu en sigurvegari var Catarina Andersson frá Svíþjóð.

Helga Margrét varpaði kúlunni 15.33m en besti árangur hennar fyrir var 15.01m, frá því í fyrra. Guðrún Ingólfsdóttir í KR á Íslandsmetið innanhúss sem er 15.64m.

Innanhúss tímabili Helgu Margrétar er nú lokið en næst á dagskrá er að fara í æfingabúðir til Ástralíu þann 20. mars nk. og mun hún dvelja þar um mánaðarskeið.

 

Fleiri fréttir